Skjölin og upplýsingarnar sem veittar eru með aðstöðunni eru eingöngu ætlaðar til persónulegra nota fjárfesta í viðkomandi sjóði í upplýsingaskyni í samræmi við 92. gr. Skjölunum og/eða upplýsingunum sem veittar eru með aðstöðunni kann að vera breytt hvenær sem er án fyrirvara. Dechert gefur enga yfirlýsingu né ábyrgð (hvorki beint né óbeint) varðandi réttleika, áreiðanleika eða nákvæmni skjalanna og/eða upplýsinganna sem veittar eru. Dechert er ekki skyldugt til að fjarlægja úrelt skjöl og/eða upplýsingar sem eru ekki lengur dagréttar af vefsíðu Dechert né merkja þau skjöl og/eða upplýsingar sem úreltar.
Ekkert sem finna má í aðstöðunni eða er veitt með henni telst fjárhagsleg, lagaleg, skattaleg eða annarskonar ráðgjöf, né ætti að taka fjárfestingaákvarðanir eða aðrar ákvarðanir eingöngu á grunni efnis vefsíðunnar. Engar upplýsingar sem veittar eru með aðstöðunni teljast tilboð, beiðni eða meðmæli eða ráðgjöf um að kaupa eða selja fjárfestingarkost eða sjóðsbréf eða um að stofna til neinna annarra viðskipta eða löggerninga af neinu tagi.
Skjölunum og upplýsingunum sem veittar eru með aðstöðunni er ekki beint til neins einstaklings í neinu lögsagnarumdæmi þar sem (vegna þjóðernis viðkomandi, skattalegrar heimilisfestar eða annars) bannað er að birta eða bjóða fram slík skjöl og/eða upplýsingar. Einstaklingar sem slíkt bann gildir um mega ekki skrá sig inn í aðstöðuna.
Dechert ber undir engum kringumstæðum ábyrgð á beinu, óbeinu eða afleiddu tjóni af neinu tagi sem stafar af notkun aðstöðunnar eða skjala eða upplýsinga sem veittar eru með aðstöðunni.